Sérfræðingur á umsjónardeild

Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum við umsjónadeild á Austursvæði. Miðstöð Austursvæðis er á Reyðarfirði en hægt er að sinna starfinu frá Akureyri, Reyðarfirði, Selfossi eða Fellabæ.

Umsjónardeildir svæða hafa umsjón og eftirlit með þeim framkvæmdum sem svæðum eru falin. Í samráði við mannvirkjasvið annast umsjónardeildir viðhald bundinna slitlaga, styrkingar og endurbætur ásamt efnisvinnslu.

Umsókn

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð og telur að nýtist í starfi. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%.

Nánari upplýsingar veitir Sveinn Sveinsson, netfang [email protected] – sími 522 1000.

Helstu verkefni og ábyrgð

Við erum að leita eftir verk- eða tæknifræðingi sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á sínu fagsviði. Meðal verkefna er eftirlit með framkvæmdum ásamt tæknilegu og fjárhagslegu uppgjöri. Vinna við undirbúning verka, mælingar, áætlanagerð og útboðslýsingar. Skráningar í gagnabanka að loknum framkvæmdum og þátttaka í öðrum verkefnum á svæðinu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Verkfræðingur, tæknifræðingur eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla af nýframkvæmdum og ivðhaldi vegamannvirkja æskileg
  • Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta í rituðu og töluðu máli
  • Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2023 og sótt er um í gegnum ráðningarvef Vegagerðarinnar: Laus störf hjá Vegagerðinni | Laus störf | Vegagerðin (vegagerdin.is)

Secret Link