Framkvæmdastjóri

Vök baths leitar að drífandi og metnaðarfullum leiðtoga fyrir spennandi og ört vaxandi ferðaþjónustufyrirtæki á Egilsstöðum.

Framkvæmdastjóri hefur yfirsýn yfir daglega starfsemi og rekstur og vinnur náið með öðru starfsfólki í stoð- og þjónustuhlutverkum.

Gerð er krafa um að framkvæmdastjórinn búi á Austurlandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með daglegum rekstri fyrirtækisins, þ.m.t. skipulag, mannauðsmál, fjármál og mælikvarðar
  • Stefnumótun og áætlanagerð
  • Þróun staðarins og framtíðarsýn
  • Markaðs- og sölumál
  • Samskipti við samfélag og alla hagaðila
  • Önnur verkefni í samráði við stjórn

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af rekstri og forystuhlutverki
  • Góð yfirsýn, árverkni og færni til ákvörðunartöku
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Leiðtogahæfni og drifkraftur
  • Góð enskukunnátta

Vök baths er einstakur baðstaður við Urriðavatn hjá Egilsstöðum sem býður upp á upplifun í heitum, fljótandi laugum, kalt bað í Urriðavatninu, gufubað, kaldan úða, veitingastað og bar.

Staðurinn opnaði í júlí 2019 og hefur verið í mikilli sókn á hverju ári frá opnun.

Hjá fyrirætkinu starfa um 16 manns á ársgrundvelli, en á álagstímum getur fjöldi starfsmanna farið yfir 30.

Vakirnar eru aðal kennimerki Vök baths, en það eru tvær laugar sem fljóta á vatninu, með aðgengi við Urriðavatnið sem getur verið 0-15 gráðu heitt. Gestir geta því reynt á eigin skinny að sitja í heitum vökum Urriðavatns og mynda þannig einstök tengsl við náttúruna í kring. Jarðhitavatnið sem notað er í böðin er einstakt á Íslandi. Um er að rða eina jarðhitavatnið sem vottað er hæft til drykkjar á landinu.

Í allri starfsseminni er lögð áhersla á endurvinnslu, hráefni úr heimabyggð, minnkun úrgangs og stöðuga umbótarvinnu.

Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2023 og sótt er um starfið á www.mognum.is.

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyirr hæfni umsækjenda.

Nánari upplýsingar veita:

Sigriður Ólafsdóttir – [email protected]

Telma Eiðsdóttir – [email protected]

 

 

Secret Link