Mannauðsfulltrúi – Austurland
Eimskip leitar að metnaðarfullum einstaklingi í fullt starf mannauðsfulltrúa á Austurlandi. Viðkomandi aðili mun hafa aðsetur á skrifstofu félagsins við Mjóeyrarhöfn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tengiliður við mannauðsdeild og eftirfylgni með innleiðingu, þróun og framkvæmd mannauðsstefnu félagsins
- Aðstoða stjórnendur við innleiðingu og úrvinnslu mannauðstengdra umbótaverkefna
- Skipulagning og þátttaka í ráðningarferli auk móttöku og þjálfunar nýliða í samvinnu við stjórnendur
- Utanumhald og greining árangurstengdra mælikvarða og framsetning á þeim
- Aðstoða stjórnendur við skipulagningu, framkvæmd og úrvinnslu gagna er varða starfsmannasamtöl
- Styðja við endurmenntun og starfsþróun starfsfólks í samvinnu við stjórnendur
- Önnur tilfallandi mannauðsmál
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af mannauðsmálum æskileg
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Góð íslenskukunnátta
- Góð tölvukunnátta og færni til að læra á ný kerfi
- Mikil skipulagshæfni og jákvætt viðhorf
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Framúrskarandi samskiptafærni og rík þjónustulund
Fríðindi í starfi
- Öflugt starfsmannafélag sem recur mörg frábær orlofshús víðsvegar um landið
- Spennandi verkefni í alþjóðlegu umhverfi
- Heilsu og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk, samgöngustyrk og fleira
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Pétur F. Jónsson, svæðisstjóri á Austurlandi
Í anda jafnréttisstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er kilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2023 og eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum heimasíðu, www.eimskip.is