Brunavörður á Austurlandi

Við leitum að jákvæðum og kraftmiklum einstaklingi sem er tilbúinn að taka að sér spennandi og ábyrgðarmikið starf brunavarðar hjá Securitas á svæði Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði.

Ef þú hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum, samskiptum og eftirliti þá gætum við haft rétta starfið fyrir þig.

Þau verkefni sem þú munt sinna:

  • Tryggja almennt öryggi og fyrirbyggjandi eftirlit á svæðinu
  • Sinna eftirliti með slökkvibúnaði og kerfum
  • Komi boð frá kerfum eða í neyðartilfellum þá stýrir þú viðbrögðum
  • Samskipti og þjónusta við samstarfsfólk og viðskiptavini

Það sem við leitum eftir er:

  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Að þú hafir hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi
  • Hjálpsemi og heiðarleiki
  • Góð tölvukunnátta
  • Löngun og áhugi til að efla þig persónulega sem og í starfi, en hluti af þjálfunarferlinu eru námskeið og með tímanum er farið á EMR námskeið (vettvangshjálp) sem er kennt í samvinnu við sjúkraflutningaskólann.

Skipulag vakta getur hentað mörgum, en vinnutíminn er öllu jöfnu 12 klst. vaktir þar sem unnið er viku í senn og viku í frí. Að auki eru vetrarfrí samkvæmt samningum AFLS og Securitas.

Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.

Sótt er um starfið á Brunavörður á Austurlandi – 50skills og umsóknarfrestur er til 25. október 2023. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað. Nánari upplýsingar veitir Guðjón Birgir Jóhannsson útibússtjóri á Austurlandi í síma 580 7000.

Securitas er leiðandi fyrirtæki á öryggismarkaði en samstilltur og góður hópur starfsfólks kappkostar við það að veita framúrskarandi þjónustu með það að markmiði að auka öryggi okkar viðskiptavina.

Secret Link