MultiTask óskar eftir rafvirkjum, rafeindavirkjum og/eða sjálfmenntuðum net og tölvugúrúum til vinnu.

Ábyrgðarsvið og helstu verkefni:

  • Viðhaldi og viðgerðir á tæknibúnaði í skipum og fyrirtækjum
  • Uppsetningar á tæknibúnaði
  • Viðhald tæknibúnaðar

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Sveinsbréf í rafvirkjun / rafeindavirkjun / rafvélavirkjun æskilegt
  • Þekking á skipa-/bátarafmagni æskileg
  • Sjálfstæði og frumkvæði
  • Lipurð í samskiptum og vilji til að vinna með öðrum
  • Almenn tölvukunnátta

MultiTask ehf. starfar í mjög fjölbreyttu umhverfi. Verkefnin eru fjölbreytt, og kerfin sem unnið er við margbreytileg. Fyrirtækið selur fjölbreyttar lausnir og búnað.
Almenn rafvirkjastörf, tölvu og rafeindatækjaviðgerðir, tæknistörf við uppsetningu, rekstur og viðhald tölvu-,net-, myndavéla-, sjónvarps-, bruna- og fjarskiptakerfa.

Viðskiptavinir MultiTask ehf eru víða um land en flest verkefnin eru á Austurlandi þar sem aðal starfsstöð fyrirtækisins er.

Um framtíðarstörf er um að ræða.

Við leggjum áherslu á heiðarleika, vönduð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.

Vinsamlegast sendið umsóknir á [email protected]

Allar fyrirspurnir og spurningar vel þegnar í síma 477 1000 og/eða gegnum netfangið [email protected]

Nánari upplýsingar fást hjá Heimi Snæ Gylfasyni
s: 6939979
@: [email protected]

Umsóknarfrestur er til 20.September 2023