Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði
Vegagerðin auglýsir fjölbreytt og krefjandi starf deildarstjóra umsjónardeildar á Austursvæði laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf á svæðismiðstöð á Reyðarfirði með möguleika á að sinna starfinu að hluta til í þjónustumiðstöð Vegargerðarinnar í Fellabæ.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með nýframkvæmdum og viðhaldi vega
- Umsjón með framkvæmdum umferðaröryggisaðgerða og viðhaldi varnargarða
- Gerð viðhaldsáætlana, umsjón með efnisvinnslu ásamt efniskaupum á svæðinu
- Mælingar tengdar framkvæmdum, s.s. útsetningar, framkvæmda- og úttektarmælingar
- Kostnaðareftirlit
- Undirbúningur og áætlanagerð fyrir þau verkefni sem deildinni eru falin
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verkfræðingur eða tæknifræðingur eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af ámóta störfum er kostur
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
- Góð tölvukunnátta
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Sveinsson, svæðissjtóri – [email protected] – 522 1000.
Umsóknarfrestur er til og með 4. september 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Vegagerðarinna Laus störf hjá Vegagerðinni | Laus störf | Vegagerðin (vegagerdin.is)