Blandað starf

Óskum eftir starfsmanni í samþætt starf við leik- og grunnskólann á Borgarfirði eystri frá og með 28. ágúst. Í leik- og grunnskólanum eru 12 nemendur. Hlutverk starfsmanns er að vinna á leikskólanum, sinna gæslu í frímínútum í leik- og grunnskóla, þrif á skólanum, sjá um hressingu og önnur tilfallandi verkefni.

Um 80% starf er að ræða.

Upplýsingar um starfið veitir [email protected] eða [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umönnun og kennsla á leikskóla
  • Þrif á leik- og grunnskóla
  • Sjá um mat og hressingu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfsvilji
  • Sveigjanleiki og jákvæðni
  • Skipulagshæfni, snyrtimennska og sjálfstæði í vinnubrögðum

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélagsins.

Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsælkjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um stöðuna.

Þeir sem ráðnir er util starfa hjá félagsþjónustu, skólum og frístund þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Ivnnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.

Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst og hægt er að sækja um í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Blandað starf | Grunnskólinn Borgarfirði eystra (alfred.is) eða á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“.

Secret Link