Hafnarverðir Fjarðabyggðarhafnir

Fjarðabyggðahafnir auglýsa laus til umsóknar tvö störf hafnarvarða. Í báðum tilfellum er um að ræða fullt starf auk bakvakta. Starfið felur í sér hafnarvörslu, viktun og þjónustu við viðskiptavini hafnarinnar ásamt ýmsum öðrum verkum sem til falla á höfnunum. Starfið er lifandi og kallar á mikil samskipti við fólk og fyrirtæki. Starfsvettvangur eru hafnir innan Fjarðabyggðar, en meginstarfsstöð er Norðfjarðarhöfn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta við viðskiptavini hafnarinnar, s.s. binda og losa skip við komur og brottfarir, afgreiðsla vatns, og rafmagns, sorphirða frá skipum, vigtun o.fl.
  • Eftirlit og umsjón með skipakomim, vöruflutningum og öðru því sem um höfnina fer, skráning þeirra og afla í aflaskráningarkerfi Fiskistofu
  • Stjórn á umferð skipa um höfnina og ákvörðun um legustað þeirra, færsla innan hafnar
  • Viðhald, hreinsun og snyrtin hafnarbakka og annarra hafnarmannvirkja
  • Snjó- og hálkueyðing af hafnarbökkum, bryggjuköntum, pollum og bílvog

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Hafnargæslumannsréttindi í hafnarvernd kostur
  • Vigtarréttindi kostur
  • Bílpróf
  • Góð íslenskukunnátta
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

Fríðindi í starfi

  • Líkamsræktarstyrkur

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst nk. og eru umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin. Skírteini til staðfestingar prófum og réttindum, auk sakavottorðs skulu fylgja umsókn.

Nánari upplýsingar veitir Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri hafna, [email protected]

Hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Fjarðabyggðar: Hafnarvörður (fjardabyggd.is)

Secret Link