Austurland.is
  • Invest
  • Fasteignir
  • Störf á Austurlandi
  • Matarauður Austurlands
  • Visit Austurland
  • Innskráning
    • Toolbox
    • Travel Trade
    • Regional planning

    Not a user? Sign up here

  • en
menu

Deildarstjóri þjónustudeildar á Austursvæði

Vegagerðin auglýsir fjölbreytt og krefjandi starfi deildarstjóra þjónustudeildar á Austursvæði laust til umsóknar. Deildarstjóri ber ábyrgð á stjórnun og rekstri þjónustudeildar og hefur yfirumsjón með öllum þjónustuverkefnum á Austursvæði. Á þjónustudeild starfa um 15 starfsmenn á þremur þjónustustöðvum: í Fellabæ, á Reyðafirði og á Höfn. Svæðismiðstöð Austursvæðis er á Reyðarfirði.

Verkefni:

  • Undirbúningur og áætlanagerð fyrir þjónustuverkefni
  • Yfirumsjón með rekstri og starfsemi þjónustustöðva og vélaverkstæðis
  • Yfirumsjón með rekstri jarðganga
  • Umsjón með viðhaldi vegsvæða
  • Kostnaðareftirlit og birgðahald

Hæfniskröfur:

  • Verk- eða tæknifræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af ámóta störfum er kostur
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
  • Öryggisvitund
  • Góð íslensku í rituðu og töluðu máli
  • Góð tölvukunnátta

Skipulagseining:
Vg 60 Þjónustudeild Austursvæðis

Heimilisfang:
Búðareyri 11 og 13, 730 Reyðarfjörður

Tengiliðir:

  • Sveinn Sveinsson
    [email protected]
    522 1000

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdarstofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Launaskilmáli:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

 

 

 

 

 

Tengdar Greinar

Dagar myrkurs 2025

Dagar myrkurs 2025

Matarmót Austurlands 2025

Matarmót Austurlands 2025

Lógó og útlit BRAS

Lógó og útlit BRAS

Ljósmyndasamkeppni / Photo competition

Ljósmyndasamkeppni / Photo competition

Samstarfsaðilar

  • Austurbrú
  • SSA
  • Sóknaráætlun Austurlands

Upplýsingar

Tjarnarbraut 39a 700 Egilsstaðir
  • [email protected]

Fréttabréf

Fylgstu með okkur

Secret Link