Laus staða deildarstjóra
Bjarkatún auglýsir lausa til umsóknar stöðu deildarstjóra frá og með 1. ágúst 2023.
Leikskólinn bjarkatún er 2 deilda leikskóli með 37 börn staðsettur á Djúpavogi sem þekkt er fyrir fallegt umhverfi og útivistarsvæði. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Cittaslow, Grænfána og Uppeldi til ábyrgðar. Samvinna, traust og virðing eru lykilorð okkar í leikskólanum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi deildarstjóra í leikskóla er æskileg
- Reynsla af vinnu í leikskóla er æskileg
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á að vinna með börnum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um leikskólann: www.bjarkatun.is
Umsóknarfrestur er til 12. apríl nk.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Sigríður Sigurðardóttir, leikskólastjóri, í síma 470 8720 eða á netfanginu [email protected].
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.
Tekið er við umsóknum í starfið á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir flipanum „laus störf“ eða á ráðningarvef Alfreðs: Laus staða deildarstjóra | Leikskólinn Bjarkatún Djúpavogi (alfred.is).
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólanum þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.