Sumarafleysing í Sundhöll
Sumarafleysing í íþróttamannvirkjum á Seyðisfirði en um er að ræða bæði íþróttamiðstöð og sundhöll.
Starfið snýst um þjónustu við notendur stofnananna og dagleg störf við mannvirkin.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum
- Þjónusta við gesti og almenn afgreiðsla
- Allar almennar ræstingar
- Uppgjör í lok vaktar
- Ýmis önnur störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af þjónustustörfum æskileg
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði og drifkraftur
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og góð samstarfshæfni
- Hreint sakavottorð
- Eldri en 18 ára
Viðkomandi þarf að standast námskeið í björgun og skyndihjálp og sundpróf fyrir laugaverði.
Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10. gr. laga nr. 70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.
Öllum umsóknum skal fylgja rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Guðrún Kjartansdóttir í síma 776 4194 og á netfanginu [email protected].
Umsækjendum er bent á að kynna sér færðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsælkjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Sumarafleysing í Sundhöll | Sundhöll Seyðisfjarðar (alfred.is) eða á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“.