Sumarævintýri 2023
Spennandi sumarstörf
Alcoa Fjarðaál leitar að góðu fólki til sumarafleysinga í kerskála, steypuskála og skautsmiðju í álverinu við Reyðarfjörð. Um er að ræða framleiðslustörf á þrískiptum átta tíma vöktum sem bjóða upp á góðan frítíma. Launin eru góð, starfsfólk hefur aðgang að mötuneyti og boðið er upp á akstur til og frá vinnu. Sumarstarfsfólk þarf að geta unnið samfellt í a.m.k. tvo og hálfan mánuð og möguleiki er á áframhaldandi starfi. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, hafa gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.
Almennar hæfniskröfur
- Dugnaður og vilji til að takast á við krefjandi verkefni
- Lipurð í samskiptum og vilji til að vinna í teymi
- Sterk öryggisvitund og áverkni
- Heiðarleiki og stundvísi
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. Frekari upplysingar veitir mannauðsteymi Fjaðaáls í síma 470 7700 eða á [email protected]. Áhugasöm eru hvött til að sækja um sem fyrst en hægt er að sækja um störfin á www.alcoa.is. Umsóknir eru trúnaðarmál og verður þeim öllum svarað. Umsóknarfrestur er til og með laugardeginum 18. mars 2023.
Fríðindi í starfi
- Rútuferðir
- Vinnufatnaður
- Hádegismatur