Blómaval á Egilsstöðum
Hefur þú ríka þjónustulund, ert góður sölumaður og hefur gaman af mannlegum samskiptum? Þá gætum við verið með starfið fyrir þig.
Við leitum að vandvirkum og öflugum einstaklingum til þess að bætast í hóp starfsmanna Blómavals á Egilsstöðum. Um er að ræða spennandi framtíðarstarf sölufulltrúa Blómavals þar sem helstu verkefni eru gerð blómaskreytinga, vöruframsetning, sala, ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini ásamt öðrum almennum verslunarstörfum. Vinnutími og starfshlutfall eftir samkomulagi.
Við leggjum ríka áherslu á jákvætt hugarfar, glaðlega framkomu og að vinna saman að því alla daga að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina.
Við leitum einnig að sumarstarfsfólki bæði í Blómaval og Húsasmiðjunni á Egilsstöðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsreynsla úr blómaverslun og af sölustörfum æskileg
- Reynsla eða þekking af blómaskreytingum er kostur
- Listrænt auga og fagurfræðileg hugsun
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi, jákvæðni og heiðarleiki í starfi
- Gott vald á íslensku
Fríðindi í starfi
- Afsláttarkjör í verslunum Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískrafts
- Aðgangur að orlofshúsum
- Styrkur til heilsueflingar
Nánari upplýsingar um störfin gefur rekstarstjóri verslunarinnar, Jóhann Páll Svavarsson á [email protected].
Hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð kyni.
Blómaval er stórmarkaður með allt fyrir blóma- og garðáhugafólk. Hjá okkur eiga áhugamenn um ræktun a ðfá allt sem hugurinn girnist og faglega þjónustu. Hjá Blómavali er lifandi starfsumhverfi, öflug liðsheild og frábær starfsandi. Lögð er mikil áhersla á símenntun og að starfsmenn fái tækifæri til að eflast og þróast í starfi.
Gildin okkar eru: Áreiðanleiki – þjónustulund – Þekking
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars nk. og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Húsasmiðjunnar: https://www.husa.is/laus-storf/