Djúpivogur – verslunarstjóri
Vínbúðin óskar eftir að ráða verslunarstjóra í Vínbúðina Djúpavogi.
Við leitum að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við frábæran starfsmannahóp ÁTVR.
Viðkomandi þarf að vera ábyrgðarfullur og hafa vilja og getu til að takast á við margvísleg verkefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
- Dagleg stjórnun, birgðahald og umhirða búðar
- Eftirfylgni þjónustu- og gæðastefnu fyrirtækisins
- Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af verslunar- og/eða verkstjórn
- Frumkvæði, metnaður og ábyrgð í starfi
- Gott viðmót og rík þjónustulund
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Almenn tölvukunnátta, þekking á Navision er kostur
Frekari upplýsingar um starifð
- Starfshlutfall er 45%
- Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri
- Sakavottorðs er krafist
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar. Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið á www.vinbudin.is. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur veirð tekin.
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg H. Stefánsdóttir – [email protected] 560 7876 og Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected] – 560 7700.
ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar. Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks. Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.