Ferlasérfræðingur í álframleiðslu
Ferlasérfræðingur
Alcoa Fjarðaál leitar að öflguum ferlasérfræðingi í álframleiðslu. Fjarða ál framleiðir árlega um 350.000 tonn af áli í 336 rafgreingarkerum. Ferlasérfræðingur ber ábyrgð á hönnun og þróun framleiðsluferla samkvæmt aðferðum straumlínustjórnunar. Í því felst meðal annars að tryggja skilvirkni mismunandi þátta í framleiðsluferlinu og tryggja hlýtingu þess við þá staðla sem fyrirtækið starfar eftir. Ferlasérfræðingur fer fyrir stöðugu umbótastarfi, tekur þátt í að móta og fylgja eftir stefnu ferlisins, innleiðir árangursmælikvarða og miðlar þekkingu um straumlínustjórnun til annarra starfsmanna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framfylgja gæða-, öryggis og umhverfisstöðlum
- Hanna vinnu- og framleiðsluskipulag til að tryggja öryggi og hámarka framleiðni
- Stýra umbótaverkefnum
- Tryggja að hönnun verkferla og starfa uppfylli innri og ytri kröfur
- Þróa sýnilega stjórnun
- Tryggja skilvirk tengsl við önnur ferli
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem viðskiptafræði, verkfræði eða verkefnastjórnun
- Reynsla af straumlínustjórnun er æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Samskiptahæfni og teymishugsun
- Gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Íþrótta og meðferðarstyrkir
- Mötuneyti
- Rútuferðir frá helstu byggðarkjörnum
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Már Ingimarsson í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í síma 843 7742.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Hægt er að sækja um starfið í Workday og á www.alcoa.is
Umsóknarfrestur er til og með sunnudeginum 5. febrúar 2023.