Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu
Við leitum að jákvæðum og öflugum hjúkrunarfræðingi til starfa á heilsugæslu Alcoa Fjarðaáls. Heilbrigði og vellíðan starfsmanna eru forgangsmál hjá okkur og heilsugæslan í álverinu er hluti af fjölbreyttri starfsemi mannauðsteymis fyrirtækisins. Tveir hjúkrunarfræðingar manna heilsugæsluna á virkum dögum og læknar hafa þar reglulega viðveru.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Heilsufarsskoðanir starfsmanna
- Fyrsta meðferð og þjónusta vegna veikinda eða meiðsla
- Upplýsingamiðlun og ráðgjöf
- Samstarf og skipulag vega viðveru lækna
- Gagnaversla og skýrslugerð
- Umsjón með aðföngum
- Eftirfylgni og viðhald staðla og ferla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hjúkrunarfræðimenntun
- Starfsreynsla í heilsugæslu æskileg
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
- Skipulagshæfileikar og nákvæmni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Rútuferðir frá helstu byggðarkjörnum
- Mötuneyti
- Íþrótta og meðferðarstyrkir
Frekari upplýsingar veitir Birgitta Inga Birgisdóttir í tölvupósti [email protected] eða í síma 843 7770.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Hægt er að sækja um starfið á www.alcoa.is
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 4. desember 2022