Tæknimaður á rannsóknastofu hjá Alcoa Fjarðaáli
Umhverfis-, heilbrigðis- og öryggisteymi Alcoa Fjarðaáls leitar að tæknimanni á rannsóknastofu. Starfið felur í sér gæða-, heilsu- og umhverfismælingar, umsjón og viðhald mælibúnaðar og almenn störf á rannsóknastofu. Rannsóknastofan sér um fjölbreyttar mælingar, svo sem í kerskála, löndunarbúnaði, vöktunarstöðvum og settjörnum. Þessar mælingar styðja við framleiðslustjórnun, gæðakerfi og umhverfismælingar sem tengjast starfsleyfi Fjarðaáls. Vinnutími er að jafnaði frá kl. 8 til 16 en viðkomandi þarf jafnframt að vinna á bakvöktum.
Ábyrgð og verkefni
- Reglubundnar mælingar og sýnataka
- Skráning og yfirferð á niðurstöðum
- Daglegur undirbúningur sýna og tækja
- Umsjón og viðhald tækjabúnaðar
- Almenn störf á rannsóknastofu
- Viðhald og þróun feral
- Vinna að umbótum
Menntun, hæfni og reynsla
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af umhverfismælingum og viðkvæmum búnaði er kostur
- Nákvæmni og vandvirkni í mælingum
- Sterk öryggisvitund og góð umgengni
- Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Gott vald á íslensku og ensku
- Góð tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið veitir Páll Freysteinsson, framkvæmdastjóri umhverfis-, heilbrigðis og öryggismála, í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í síma 843 7766. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Hægt er að sækja um starfið á www.alcoa.is.
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 12. September.