Lyfja Egilsstöðum – Lyfjafræðingur
Við leitum að metnaðarfullum og sjálfstæðum lyfjafræðingi til starfa í Lyfju á Egilsstöðum. Um er að ræða spennandi starf og tækifæri fyrir metnaðarfullan lyfjafræðing.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Afgreiðsla, verðlagning og frágangur lyfseðla
- Lyfjafræðilega umsjá og faglegar upplýsingar til viðskiptavina og annarra starfsmanna um lyf og lyfjanotkun
- Pantanir á lyfjum og frágangur í reseptúr
Hæfniskröfur
- Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð
Opnunartími apóteksins er kl. 10-18 virka daga og kl. 10-14 á laugardögum og vinnutími er eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita Inga Sæbjörg Magnúsdóttir, lyfsali Lyfju Egilsstöðum, sími 471 1273 / [email protected] og Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri, sími 530 3800 / [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurning sem trúnaðarmál.