Rafvirki óskast til starfa
Launafl ehf óskar eftir að ráða rafvirkja í fullt starf á rafmagnsverkstæði fyrirtækisins á Reyðarfirði.
Launafl er iðnfyrirtæki í Fjarðabyggð með fjölbreytta starfsemi í flestum greinum sem lúta að iðnaði.
Í fyrirtækinu er skemmtilegur starfsandi og öflugt starfsmannafélag.
Góð laun eru í boði og tækifæri til starfsþróunar
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn rafmagnsvinna
- Viðgerðir, viðhald og bilanagreining
- Samskipti við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf eða sambærileg menntun
- Reynsla í faginu
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku eða ensku kunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður I. Elmarsdóttir mannauðsstjóri í síma 892 7484 eða [email protected]
Sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Rafvirki óskast til starfa | Launafl ehf | Fullt starf Reyðarfjörður | Alfreð (alfred.is)