LEIKSKÓLINN LYNGHOLT AUGLÝSIR EFTIR STUÐNINGSFULLTRÚA MEÐ NEMANDA
Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Um er að ræða 100 % stöðu.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
- Þroska- /iðjuþjálfa menntun, sjúkraliðamenntun eða grunnnám fyrir stuðningsfulltrúa eða sambærileg menntun.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Hæfni og áhugi á að vinna í hóp.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Ábyrgð og stundvísi.
- Góð íslenskukunnátta.
Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Umsóknarfrestur er til 1.april 2022.
Nánari upplýsingar gefur Gerður Ósk Oddsdóttir, skólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða á [email protected]