Herbergisþerna – Icelandair hótel Hérað

Icelandair hótel hérað leitar að öflugum og drífandi starfsmönnum í herbergjadeild hótelsins.

Helstu verkefni eru herbergjaþrif skv. Gæðastöðlum fyrirtækisins og önnur verkefni herbergjadeildar þar sem markmiðið er að bjóða gestum upp á fyrirmyndar umhverfi og þjónustu.

Hæfniskröfur:

  • Gott vald á ensku
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Auga fyrir smáatriðum
  • Snyrtimennska og stundvísi
  • Jákvæðni og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni

Vinsamlegast leggið inn umsókn í gegnum vefsíðuna Herbergisþerna – Icelandair hótel Hérað – 50skills

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars næstkomandi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir:

Dagný Birgisdóttir, hótelstjóri,

[email protected]

Icelandair hótel er fyrirtæki sem starfar í alþjóðlegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, sveigjanleika og frumkvæði í starfi. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur með sameiginleg markmið, þar sem borin er virðing fyrir gestum, samstarfsmönnum og náttúrunni.  

Secret Link