STARFSFÓLK ÓSKAST Í SUMARFRÍSTUND Í FJARÐABYGGÐ
Langar þig að starfa með börnum í Fjarðabyggð í sumar?
Fjarðabyggð óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinendur í sumarfrístund í Fjarðabyggð.
Starfið í sumarfrístundinni byggist á útivist, hreyfingu, leikjum og fjöri. Sumarfrístundin er fyrir börn sem voru að ljúka 1. – 4. bekk skólaárið 2021-2022. Sumarfrístundin verður opin frá kl. 07:45 til 16:00 frá og með þriðjudeginum 7. júní til og með föstudagsins 1. júlí í Neskaupstað, á Eskifirði, Reyðarfirði og á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík. Sumarfrístund opnar svo aftur mánudaginn 1. ágúst til og með föstudeginum 19. ágúst. Möguleiki er á öðrum störfum hjá Fjarðabyggð á meðan sumarfrístund er lokuð frá 4. júlí til 29. júlí, ef þess er óskað.
Helstu verkefni:
- Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt úti sem inni.
- Leiðbeina börnum í leik og starfi í sumarfrístund.
- Hjálpa börnum í sumarfrístund við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
- Aðstoða börn í kaffitímum.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi æskileg.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Metnaður og dugnaður.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum. Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2022.
Nánari upplýsingar veitir Alexandra Mekkín Pálsdóttir í síma 470 9000 eða í gegnum netfangið [email protected]