Verkstjórar í vinnuskóla Múlaþings
Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir eftir verkstjórum í Vinnuskóla Múlaþings sumarið 2022 á starfstöðvar vinnuskólans á Egilsstöðum/Fellabæ og Seyðisfirði.
Verkstjóri stýrir verkefnum sumarstarfsins og þarf að hafa reynslu á þessu sviði, útdeilir verkefnum til flokkstjóra vinnuhópa og þarf að skipuleggja fram í tímann.
Verkstjóri starfar undir stjórn þeirra sem hafa yfirumsjón með vinnuskólanum og hefur undir sinni stjórn flokkstjóra í vinnuskóla viðkomandi stað.
Verkstjóri er nemendum fyrirmynd hvað varðar heilbrigðan lífsstíl, stundvísi og tillitssemi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber daglega ábyrgð og hefur yfirumsjón með starfsemi og nemendum vinnuskóla Múlaþings í viðkomandi bæjarkjarna í samvinnu við yfirmenn.
- Vinnur markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan starfsfólks og nemenda í vinnuskólanum.
- Forgangsraðar verkefnum, samræmir og hefur frumkvæði og setur flokkstjórum vinnuskóla fyrir verkefni og tekur þátt í störfum þeirra.
- Hefur samskipti við foreldra og forráðafólk nemenda vinnuskóla.
- Leiðbeinir flokkstjórum um verklag og aðferðir og hefur eftirlit með að vel og rétt sé unnið. Gætir þess að ávallt liggi skýrt fyrir hvaða verkefnum flokkstjórar eigi að sinna.
- Hefur samskipti við viðeigandi stofnanir og deildir sveitarfélagsins, auk yfirvalda, ef þörf krefur.
- Hefur frumkvæði að lausn verkefna á því sviði sem undir hann heyra og hann starfar að.
- Staðfestir vinnutíma nemenda og flokkstjóra vinnuskóla og skilar til yfirmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð færni í samskiptum og hæfni til að stýra hópi af ungu fólki.
- Reynsla af, og áhugi á, að vinna með og fræða ungt fólk.
- Reynsla af, og áhugi á, fegrun umhverfis og öðrum verkefnum vinnuskóla.
- Krafa um frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Bílpróf.
Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfi að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10. gr. laga nr. 70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.
Öllum umsóknum skal fylgja rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Freyr Ævarsson, í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected]
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is