Búðin á Borgarfirði eystra auglýsir eftir verslunarstjóra.

Verslunarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri, vöruúrvali og að halda búðinni fallegri og snyrtilegri.

Einnig þarf að sjá um létt bókhald og skráningu í afgreiðslukerfi.

Aðallega felst starfið í samskiptum við viðskiptavini, því búðin okkar er líka hálfgerð félagsmiðstöð.

Hér er um að ræða 70% starf yfir vetrarmánuðina og 100 % að sumri.

Búðin á Borgarfirði hóf rekstur árið 2018 og er í eigu og rekin af íbúum á Borgarfirði eystra. Ef þú hefur áhuga á að kynnast dásamlegu samfélagi sem er hentugt fyrir bæði fjölskyldur og einstaklinga þá er þetta tækifæri fyrir þig. Á Borgarfirði eystra er grunnskóli og gjaldfrjáls leikskóli. Staðurinn er þekktur sem mikil útivistarparadís bæði sumar og vetur.

Umsóknarfrestur er til 31. mars.

Frekari upplýsingar veita:

Christer Magnusson framkvæmdastjóri, s. 8950176 og
Lindsey verslunarstjóri, s. 6251363

Búðin á Borgarfirði er á Facebook!

Secret Link