Yfirflokkstjóri í garðyrkjudeild Fjarðabyggðar
Vilt þú taka þátt í að móta framtíðina?
Yfirflokkstjóri óskast til starfa hjá garðyrkjudeild Fjarðabyggðar, um framtíðarstarf er að ræða. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf. Meðal verkefna yfirflokkstjóra er, flokkstjórn almennra starfa á vegum vinnuskólans, umhirða, viðhald og nýframkvæmdir grænna svæða og umsjón með starfssemi vinnuhópa í samvinnu garðyrkjustjóra.
Menntun og reynsla
- Þarf að vera orðinn tuttugu ára.
- Menntun í garðyrkju er kostur
- Reynsla af stjórnun er æskileg
- Skipulags- og samskiptahæfni.
- Bílpróf.
Hæfnisþættir
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Vinna í hóp
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar veitir Helga Björk Einarsdóttir garðyrkjustjóri [email protected] eða í síma 470 9000
Umsóknarfrestur er til og með 18. apríl n.k. og aðeins er tekið við rafrænum umsóknum.