Sérfræðingur fiskeldis á Austurlandi
Sérfræðingur fiskeldis á Austurlandi
Matvælastofnun óskar eftir að ráða háskólamenntaðan einstakling með fagþekkingu á fiskeldi í 100% starf sérfræðings með aðsetur á Austfjörðum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit með búnaði og rekstri fiskeldisstöðva
- Þróun eftirlitsaðferða
- Þróun og uppsetning gæðaskjala
- Útgáfa rekstrarleyfa
- Úrlausn fyrirspurna
- Eftirlit í matvælafyrirtækjum
- Bátaskoðanir og eftirlit með aflameðferð
- Skýrslugerð og úrvinnsla gagna
Hæfnikröfur
- Háskólamenntun í sjávarútvegsfræði, fiskeldi, líffræði, verkfræði eða skyldum greinum
- Fagþekking og/eða reynsla af fiskeldi
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg
- Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
- Góð almenn tölvukunnátta
- Færni í mannlegum samskiptum og vilji til teymisvinnu
- Nákvæmni, frumkvæði, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
- Reynsla af opinberu eftirliti æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá, prófskírteini og kynningarbréf. Upplýsingar um stofnunina er að finna á vef Matvælastofnunar www.mast.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.
- Vinnutímaskipulag: Dagvinna
- Starfshlutfall: 100%
- Starfssvið: Sérfræðistörf
- Umsóknarfrestur er til: 04.12.2020
Nánari upplýsingar veitir
Erna Karen Óskarsdóttir – [email protected] – 5304800