Sjúkraliði – Hjúkrunarheimilið Uppsalir – Fáskrúðsfjörður
Laus er til umsóknar 60 – 80% staða sjúkraliða á hjúkrunarheimilinu Uppsölum.
Um er að ræða vaktavinnu og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum sjúkraliða samkvæmt lögum og reglugerðum.
Einstaklingsmiðuð aðstoð og umönnun við íbúa heimilisins.
Hæfniskröfur
- Umsækjandi skal hafa lokið sjúkraliðanámi frá viðurkenndri menntastofnun og hafa gilt starfsleyfi.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
- Rík þjónustulund.
- Hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sjúkraliðafélag Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi.
Umsókn ásamt fylgigögnum skal skilað á netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 31.07.2020
Nánari upplýsingar veitir
Ragnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri [email protected]
Elin Hjaltalín, hjúkrunarforstjóri – [email protected].