Móttökuritari – Egilsstaðir

Móttökuritari – Egilsstaðir – heilsugæsla – Sumarafleysing 2020

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara í sumarafleysingu á Heilsugæsluna á Egilsstöðum. Viðkomandi þarf að geta byrjað sem fyrst og er afleysing út ágúst mánuð eða eftir nánara samkomulagi.

Starfshlutfall er 100% eða skv. samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun og vinna með afgreiðslukerfi við móttöku ásamt tilfallandi verkefnum.

Hæfnikröfur
Gerð er krafa um stúdentspróf, þekkingu og vald á að vinna upplýsingar á tölvutæku formi, gild almenn ökuréttindi, kunnáttu í ensku, tölulæsi og færni í upplýsinga- og fjarskiptatækni. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2020

Nánari upplýsingar veitir
Þórarna Gró Friðjónsdóttir – [email protected] – 470-3028 & 849-1455
Emil Sigurjónsson – [email protected] – 470-3053 & 895-2488

Heilbrigðisstofnun Austurlands
Egilsst. Heilsugæsla
Lagarás 17
700 Egilsstaðir

Smellið hér til að sækja um starf

Secret Link