Launafl óskar eftir starfsmanni í verslun
Verslunarmaður óskast
Launafl óskar eftir að ráða starfsmann í
verslun fyrirtækisins. Verslunin er með breitt
vöruúrval og fæst þar meðal annars gas,
gæludýrafóður, málning og byggingarvörur.
Góð laun eru í boði á lifandi vinnustað og
tækifæri til starfsþróunar.
Helstu verkefni:
• Almenn verslunar- og lagerstörf
• Slöngusmíði
• Samskipti við viðskiptavini
• Tölvuvinnsla og önnur tilfallandi verkefni
Hæfnis- og menntunarkröfur:
• Reynsla af verslunarstörfum er kostur
• Iðnmenntun er kostur
• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum
samskiptum
• Almenn tölvukunnátta
• Ökuréttindi
• Íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2020 og hvetjum við konur jafnt sem
karla til að sækja um störfin.
Umsóknir ásamt ferilskrám skulu sendar á netfangið [email protected]
Öllum umsóknum verður svarað.
Frekari upplýsingar veitir starfsmannastjóri Launafls, Birkir í síma 840-7230
Umsóknir verða höndlaðar sem trúnaðarmál.
Launafl ehf. – www.launafl.is – sími 414-9400