Sumarstörf á Fljótsdalshéraði
Fljótsdalshérað auglýsir eftir starfsfólki, 17 ára og eldra, í eftirtalin störf sumarið 2020:
Flokkstjórar í vinnuskóla:
Starf flokkstjóra felst í að stjórna starfi hóps nemenda, leiðbeina þeim og fræða um rétt vinnubrögð og verkþætti í starfinu, halda skýrslu um mætingar og ástundun nemenda og vinna markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan nemenda í vinnuskólanum.
Leitað er að einstaklingum, 19 ára og eldri, sem:
- Gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10. gr. laga nr.70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.
- Hafa góða færni í samskiptum og hæfni til að stýra hópi af ungu fólki.
- Hafa reynslu af, og áhuga á, að vinna með og fræða ungt fólk.
- Eru nemendum fyrirmynd hvað varðar heilbrigðan lífsstíl, stundvísi og tillitssemi.
- Eru sjálfstæðir, skipulagðir og sýna frumkvæði í starfi.
- Hafa bílpróf (ekki skilyrði).
Starf á sláttutraktor sveitarfélagsins:
Leitað er að einstaklingi, 18 ára og eldri, sem hefur áhuga og færni til að starfa á sláttutraktor sveitarfélagsins og sinna slætti á opnum svæðum. Bílpróf er skilyrði og eru vinnuvélaréttindi og kerrupróf mikill kostur.
Almenn sumarstörf:
Leitað er að einstaklingum, 17 ára og eldri, sem hafa áhuga og færni til að starfa við ýmis störf utanhúss, s.s. í stígagerð, málningarvinnu og grisjun og snyrtingu trjágróðurs.
Sláttugengi:
Leitað er að einstaklingum, 17 ára og eldri, sem hafa áhuga og færni til að slá opin svæði og garða með sláttuorfum.
Störf á íþróttavöllum:
Leitað er að einstaklingum, 17 ára og eldri, sem hafa áhuga og færni til að sinna umhirðu og viðhaldi á og í kringum íþróttavelli veitarfélagsins og öðrum verkefnum sem tengjast völlunum. Bílpróf, vinnuvélaréttindi og/eða kerrupróf mikill kostur.
Störf í leikskólum:
Leitað er að einstaklingum, 17 ára og eldri, sem hafa áhuga og færni til að sinna almennum leikskólastörfum og öðrum tilfallandi störfum innan leikskóla.
Störf í Safnahúsi:
Leitað er að einstaklingum, 17 ára og eldri, sem hafa áhuga og færni til að sinna almennum afgreiðslustörfum, upplýsingagjöf og öðrum tilfallandi störfum innan Safnahússins. Athugið að hluti af vinnu í Safnahúsinu fer fram um helgar.
Skapandi sumarstörf:
Leitað er að einstaklingum, á milli 17-25 ára, sem hafa áhuga á því að starfa við Skapandi sumarstörf. Skapandi sumarstörf eru hugsuð fyrir einstaklinga og hópa sem hafa áhuga á að efla listsköpun sína og um leið glæða sveitarfélögin lífi með listrænum og skapandi uppákomum. Starfið hentar fólki með fjölbreyttan áhuga, t.d. á tónlist, myndlist, sviðlistum og kvikmyndagerð.
Störf í sumarskóla:
Leitað er að hugmyndaríkum og jákvæðum einstaklingum, 18 ára og eldri, sem hafa áhuga á að vinna að fjölbreyttum frístundaverkefnum með börnum á aldrinum 6-9 ára. Reynsla af félagsstarfi með börnum og/eða ungmennum er mikill kostur.
Leitað er að einstaklingum sem:
- Gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10. gr. laga nr.70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.
- Hafa góða færni í samskiptum og hæfni til að stýra hópi af ungu fólki.
- Hafa reynslu af, og áhuga á, að vinna með og fræða börn.
- Eru þátttakendum fyrirmynd hvað varðar heilbrigðan lífsstíl, stundvísi og tillitssemi.
- Eru sjálfstæðir, skipulagðir og sýna frumkvæði í starfi.
Umsóknareyðublað fyrir öll störfin er á heimasíðu Fljótsdalshéraðs. Umsóknafrestur er til og með 6. maí.