Fljótsdalshérað auglýsir eftir leikskólakennurum

Fljótsdalshérað auglýsir eftir leikskólakennurum við leikskólana Hádegishöfða og Tjarnarskóg og samrekna leik- og grunnskólann í Brúarási.

Menntunar- og hæfniskröfur eru:

  • Leikskólakennaramenntun
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og áhugasemi
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
  • Snyrtimennska og stundvísi.

Við hvetjum bæði kynin til að sækja um.
Allar frekar upplýsingar um leikskólann Hádegishöfða og störf þar veitir Guðmunda Vala skólastjóri [email protected] 4700 670.
Upplýsingar um Tjarnarskóg veitir Sigríður Herdís, skólastjóri í síma 4700 660 eða á netfanginu [email protected] og um samrekna leik- og grunnskólann í Brúarási veitir Sigríður Stella allar frekari upplýsingar í síma 4700 626 eða á netfanginu [email protected].

Umsóknir sendist á netfang viðkomandi skólastjóra. Umsóknarfrestur er til 15. maí 2020

Secret Link