Hótel Hallormsstaður

Á Hótel Hallormsstað er að finna tvo notalega veitingastaði, Kol og Lauf. Hótel Hallormsstaður er staðsett í Hallormsstaðarskógi, stærsta skógi landsins. Staðurinn er vinsæll áningarstaður Íslendinga sem eru duglegir að stunda útilegur á nærliggjandi tjaldstæðum.

KOL er fallegur staður á annarri hæð Hótel Hallormsstaðs með ótrúlegt útsýni yfir vatnið og skóginum. Matseðillinn er fjölbreyttur með mikið úrval af góðum mat.

LAUF býður upp á glæsilegt kvöldverðarhlaðborð með ógrynni af gómsætum réttum. Allt frá köldu forréttarborði, súpu dagsins með heimabökuðu brauði og góðum salatbar til ljúffengra aðalrétta og girnilegra eftirrétta.