Tæknistarf á ferðinni-Austurland

Okkar frábæra tækniteymi á Austurlandi vantar liðsauka! Starfið felur í sér fjölbreytta tækni- og eftirlitsþjónustu á öryggis- og brunaviðvörunarkerfum, ásamt uppsetningum og forritun á aðgangstýrikerfum, myndavélum og eftirlitsbúnaði. Lögð er rík áhersla á vönduð vinnubrögð, jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda. Ef þú…

  • hefur brennandi áhuga á tækninýjungum og góða almenna tækniþekkingu
  • sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að takast á við krefjandi verkefni
  • býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku
  • ert með sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun er það kostur

… þá gætum við verið að leita af þér! Starfið felur í sér fjölbreytta tækni- og eftirlitsþjónustu á öryggis- og brunaviðvörunarkerfum, ásamt uppsetningum og forritun á aðgangstýrikerfum, myndavélum og eftirlitsbúnaði. Í boði er fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 8:00-16:00 virka daga. Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini. Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl. Nánari upplýsingar veitir Guðjón Birgir Jóhannsson, útibússtjóri, í síma 580-7000.