Kjötvörur frá Breiðdalsbita

Kjötið í vörur Breiðdalsbita kemur frá þeirra eigin búum og er kryddað með jurtum dalsins. Sauðfé þeirra hefur fengið að vaxa og dafna við bestu skilyrði í Breiðdalnum þar sem að elstu fjöll landsins rísa úr sjó og fjölbreytt flóra fjallajurta vex og nærir lömbin allt sumarið.

Bjór-Grill pylsurnar innihalda bjórinn Sauð frá Beljandi Brugghús, rósmarín, hvítlauk OG auðvitað breiðdælskt kindakjöt.

Lyngkryddað lamba grillkjöt með bjór BBQ sósu.

Ær hakkið og ær borgararnir eru skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnu nautgripa hakki og borgurum.

Secret Link