Jurt

Jurt er íslenskt fyrirtæki sem var stofnað í þeim tilgangi að rækta hágæða afurðir úr plöntum sem eru erfiðar til ræktunar. Fyrirtækið leggur mikið upp úr sjálfbærni og endurnýtanlega orku. Jurt sérhæfir sig í vistvænni sjálfbærri matvælaframleiðslu.

Fyrsta afurð fyrirtækisins er Nordic Wasabi. Jurt ákvað að velja eina erfiðustu plöntu heims til ræktunnar sem sitt fyrsta verkefni. Í dag er Nordic Wasabi þekkt vörumerki um allan heim og nýta heimsfrægir veitingastaðir og kokkar hráefnið til matargerðar.