Vinnustofa í samfélagsmiðlum

19. March, 2024

Vinnustofa í samfélagsmiðlum
19. mars frá 9 – 12, Molinn, Reyðarfirði
Þriðjudaginn 19. mars ætlum við að hittast á starfsstöð Austurbrúar í Molanum á Reyðarfirði og vinna í samfélagsmiðlum og annarri markaðssetningu.
Vinnustofan hefst á stuttri kynningu frá verkefnastjóra Austurbrúar um hvernig markaðssetningu er háttað á samfélagsmiðlum Austurlands.
Að henni lokinni nýtum við tímann til þess að vinna í okkar eigin samfélagsmiðlum, hvort sem það er uppsetning herferða, birtingaáætlun eða eitthvað allt annað. Verkefnastjórar Austurbrúar verða þátttakendum innan handar og aðstoða eftir fremsta megni.
Vinnum í því sem við gefum okkur annars ekki tíma til í skemmtilegu umhverfi með kollegum frá Austurlandi!
Þátttaka er ókeypis en er eingöngu fyrir samstarfsaðila Austurbrúar. Ef þú vilt gerast samstarfsaðili smellir þú hér: https://www.east.is/is/umsokn