Útgáfutónleikar Dimmu: Þögn

2. October, 2021

Útgáfutónleikar Dimmu: Þögn
Laugardaginn 2. október kl. 21:00-23:45
Valaskjálf, Egilsstöðum

Dimma fagnar útgáfu nýjustu breiðskífu sinnar Þögn með útgáfutónleikum í Valaskjálf á Egilsstöðum laugardaginn 2. október.

Dimma hefur um árabil verið ein vinsælasta rokksveit landsins og hafa þeir gefið út sex hljóðversplötur, fimm tónleikaplötur og átt fjölda laga sem farið hafa hátt á öldum ljósvakans.
Þá hefur sveitin einnig hlotið mikið lof og viðurkenningu fyrir tónleika sína, sem þykja mikið sjónarspil og krafturinn og orkan frá sviðinu lætur engan ósnortinn.

Á útgáfutónleikunum í Valaskjálf mun Dimma flytja plötuna Þögn í heild sinni ásamt úrvali af eldri sleggjum.
Þetta er því viðburður sem enginn rokkunnandi má missa af!