Upp upp mín sál: Tölum um grósku og velferð

19. October, 2024

Geðræktarmálþingið ,,Upp, upp mín sál“ verður haldið á Seyðisfirði, laugardaginn 19. október 2024 kl. 10:00 – 14:45 í Herðubreið.
Að málþinginu standa Múlaþing og Samráðshópur um áfallahjálp á Austurlandi með stuðningi frá Rotary klúbbi Héraðsbúa.
Boðið verður upp á súpu í hádeginu sem og kaffiveitingar og eru þátttakendur því beðnir um að skrá þátttöku á heimasíðu Múlaþings fyrir 15. október næstkomandi