Umhverfisferð í Snæfell

7. September, 2024

Umhverfisferð 4×4 austurlandi.
Verkefni: lokið við að stika inn að jökli og rétta af stikur sem eru fallnar (ef einhverjar finnast).
Þjóðgarðurinn býður okkur upp á gistingu í Snæfellsskála frá föstudegi fram á sunnudag og klúbburinn býður upp á kvöldmat á laugardagskvöld, allt með svipuðu sniði og í fyrra.
Börn og gamalmenni velkomin með en öllum verður þrælað út sem vettlingi geta valdið.
Skráning með „going“ eða messanger en bannað að selja dekk á meðan skránig stendur yfir