Tónlistarstund II – 2025
8. June, 2025
Á öðrum tónleikum raðarinnar, sem verða í Vallaneskirkju, tökum við á móti góðum gestum sem færa tónleikagestum tónlist sem frá tímum Elísabetar I Englandsdrottningar og eftirmanns hennar, Jakobs I, gullöld enskrar lútutónlistar. Lúta, tvenns konar hörpur og söngur mun óma í einstökum hljómburði kirkjunnar. Þess má geta að Asparhúsið er opið fram að tónleikum og tilvalið að gæða sér að ljúffengum veitingum fyrir kvöldskemmtunina.
Sólveig Thoroddsen er menntaður hörpuleikari, sem einnig hefur sérhæft sig í upprunaflutningi – þ.e. flutningi á gamalli tónlist á hljóðfæri frá þeim tíma og með fagurfræði liðinna alda. Hún lauk BMus námi frá Konunglega tónlistarháskólanum í Cardiff í Wales árið 2013 og meistaranámi í upprunaflutningi frá listaháskólanum í Bremen árið 2016. Síðan hefur hún starfað sem hörpuleikari í Þýskalandi, Costa Rica og á Íslandi og komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum, m.a. á Sumartónleikum í Skálholti, Sumartónleikum á Hólum, Reykjavík Early Music Festival og Festival Barroco Santa Ana.
Sergio Coto Blanco lauk gítarnámi við Hochschule für Musik Hanns Eisler í Berlín. Í kjölfarið nam hann lútu- og teorbuleik við listaháskólann Hochschule für Künste Bremen. Sergio hefur starfað sem lútuleikari víða í Evrópu og komið fram á hátíðum eins og Händel Festspiele Halle, Internationales Bachfest Schaffhausen, Heidelberger Frühling og Bachwoche Stuttgart. Auk þess hefur hann kennt kontrapunkt við Universidad Nacional de Costa Rica (UNA.) Hann býr nú og starfar á Íslandi, en hérlendis hefur hann m.a. komið fram á Sumartónleikum í Skálholti, Sumartónleikum í Sigurjónssafni og Reykjavík Early Music Festival.
Tónlistin sem tvíeykið hyggst kynna á þessum tónleikum er sem fyrr segir frá tímum Elísabetar I Englandsdrottningar og eftirmanns hennar, Jakobs I, gullöld enskrar lútutónlistar. Á þessum tíma þótti lútan göfugt hljóðfæri og mikið magn fjölbreyttrar einleikstónlistar hefur varðveist í handritum og prentuðum bókum, tónlist sem hljómaði við hirðir og í heimahúsum. Einnig er til fjöldinn allur af stykkjum fyrir lútu í mismunandi samsetningum, en á tónleikunum er tveimur mismunandi endurreisnarlútum, barokkhörpu og gotneskri hörpu teflt saman á mismunandi hátt, auk þess sem söngur hljómar í nokkrum stykkjum. Aðaláherslan í efnisskránni er sá siður fyrri tíma að skreyta og semja eða spinna ný tilbrigði (divisions/diminuzioni) við laglínur, en þetta gerðu færir hljóðfæraleikar óspart á 16. og 17. öld. Tvíeykinu leikur hugur á að endurvekja þessa hefð með eigin tilbrigðum og skreytingum við lög eftir þekkta og óþekkta höfunda frá 16. og 17. öld.
Tónleikaröðin er styrkt að Uppbyggingarsjóði Austurlands, Múlaþingi og Tónlistarsjóði.
Aðgangur er ókeypis.