Tónleikar í kaffibrennslunni Kvörn

31. July, 2024

Síðbúnir útgafutónleikar fyrir EP plötuna Counting Sad Songs eftir Markús Bjarnason verða haldnir í Kaffibrennslunni Kvörn miðvikudagskvöldið 31. júlí kl. 20:00
Markús kom til Stöðvarfjarðar fyrir nokkrum árum og tók upp með Vinny í stúdíó Silo
6 lög beint inná víðóma segulband. Hann spilaði og söng beint inn og Vinny hljóðjafnaði live þar sem allt stúdíóið var notað. Vinny spilaði jafnframt með á trommur í einu lagi.
5 lög rötuðu á EP plötuna Counting Sad Songs og eitt lag: Distant Hum var gefið út síðar sem singull. Hér að neðan eru tengill á plötuna á Spotify og einnig eru lögin á öllum helstu streymisveitum.
Á miðvikudagskvöldið ætlar Markús að spila lögin órafmagnað á kassagítar og hver veit nema óvæntur gestur komi og spili með í einu lagi.
Markús ætlar að spila flest lögin af þessum upptökum sem og nokkur glæný lög.
Rýmið hentar einstaklega vel fyrir akústíska tónleika þar sem endurómun er góð og rýmið ekki of stórt. Þannig er hægt að spila lögin í þeim búning sem þau eru samin.
Ókeypis aðgangur er inn og boðið uppá kaffi og bakkelsi.
Krukka fyrir frjáls framlög verður á staðnum fyrir þá sem vilja.