Töfrasmiðja fyrir eldri borgara

11. September, 2024

Býr töframaður í þér?
Bókasafn Héraðsbúa býður upp á töfrasmiðju fyrir eldri borgara miðvikudaginn 11. september. Smiðjan hefst klukkan 10 og er í tvær klukkustundir.
Smiðjan er þátttakendum að kostnaðarlausu en skráning er nauðsynleg á [email protected]
Leiðbeinandi er töframaðurinn Einar Aron sem er einn yngsti töframaður landsins en hefur þrátt fyrir það komið víða við og skapað sér nafn sem eftirsóttur töframaður, bæði meðal barna og fullorðinna. Hann á að baki á annað þúsund töfrasýningar og hefur kennt um 3.500 manns á öllum aldri, töfrabrögð.
Smiðjan er styrkt af Bókasafnasjóði.