TÍRA / Myndlistarsýning

5. June, 2020 - 5. August, 2020

Föstudaginn 5. júní opnaði ljósmyndasýningin Tíra eftir Bjargeyju Ólafsdóttur í Þórsmörk Þiljuvöllum 11 hjá Menningarstofu Fjarðabyggðar.

Sýningin er opin frá kl. 14-17 alla virka daga.

Bjargey Ólafsdóttir býr og starfar að list sinni í Reykjavík. Hún nam myndlist við Myndlista og handíðaskóla Íslands sem og Myndlistarakademíuna í Helsinki. Hún nam ljósmyndun við Aalto University í Helsinki og kvikmyndagerð við Binger Filmlab í Amsterdam. Listsköpun Bjargeyjar Ólafsdóttur er ekki bundin við einn listmiðil heldur velur hún sér þann miðil sem henni finnst henta hugmyndinni best hverju sinni. Bjargey teiknar, málar, ljósmyndar, hún fæst við kvikmyndagerð, hljóðverk, bókverk og gjörninga.

Bjargey var tilnefnd til ljósmyndaverðlaunanna Deutsche Börse Photography prize og the Godowski Colour photography Award fyrir ljósmyndaseríu sína Tíru sem hún sýndi fyrst í Ljósmyndasafni Reykjavíkur árið 2009. Seríuna ljósmyndaði Bjargey á Seyðisfirði í listamannadvöl í Skaftfelli árið 2008.

Sýningin er samstarfsverkefni milli Menningarstofu Fjarðabyggðar og Skaftfells á Seyðisfirði.