SUMARTÓNLEIKARÖÐ BLÁU KIRKJUNNAR

1. July, 2020 - 5. August, 2020

Sumartónleikaröðin Bláa kirkjan var stofnsett árið 1998 af Muff Worden tónlistarkennara og Sigurði Jónssyni verkfræðingi. Tónleikaröðin hefur verið starfrækt óslitið síðan.
Tónleikarnir fara fram í Seyðisfjarðarkirkju á miðvikudagskvöldum í júlí og fram í ágúst. Lögð hefur verið áhersla á að bjóða upp á fjölbreytta tónleika þar sem klassísk tónlist, djass og blús, þjóðlagatónlist og léttari músík fá að njóta sín. Flytjendur eru alla jafna tónlistarfólk í fremstu röð.
Seyðisfjarðarkirkja þykir gott tónleikahús og láta flytjendur vel af því. Í kirkjunni er nýlegur Steinway flygill og 14 – 15 radda Frobeníus orgel. Kirkjan getur tekið allt að 300 manns í sæti. Tónleikagestir eru bæði heimamenn og Austfirðingar sem og erlendir ferðamenn.
Muff var fyrstu árin aðaldriffjöður tónleikaraðarinnar en hún lést árið 2006, langt fyrir aldur fram. Í dag er starfandi stjórn tónleikaraðarinnar sem skipuð er af fulltrúum Seyðisfjarðarkaupstaðar og Seyðisfjarðarkirkju en kaupstaðurinn leggur einnig til verkefnastjóra. Formaður stjórnar er Sigurður Jónsson sem stofnaði tónleikaröðina ásamt Muff á sínum tíma.

Nánari upplýsingar um tónleikaröðina má finna hér