Tæknidagur fjölskyldunnar

13. April, 2024

Tæknidagur fjölskyldunnar verður haldinn  laugardaginn 13. apríl 2024 í Verkmenntaskóla Austurlands. Dagurinn er sem fyrr tileinkaður tækni, vísindum, sköpun og þróun á Austurlandi og miðast dagskráin við alla aldurshópa.