Svavar Knútur: Krummar krunka líka á sumrin

16. July, 2021

Svavar Knútur: Krummar krunka líka á sumrin
16. júlí kl. 21:00, í Randúlfssjóhúsi á Eskifirði
Miðaverð: 2.500 kr.

 Svavar Knútur söngvaskáld fagnar nýju sumri með tónleikaferðalagi um landið. Þráláti húsbrjóturinn sem skemmdi síðasta árið hörfar nú óðum og því ber að fagna. Á tónleikunum mun Svavar Knútur segja sögur, leika lög úr öllum áttum, bæði frumsamin og sígild, gömul og ný. Þó Söngvaskáld, rétt eins og íslenski hrafninn, séu vissulega gjarnan tengd við myrkari og kaldari tíð, eiga þau þó sitt erindi og hlutverk á björtum sumardögum.
Svavar vinnur nú að nýrri plötu og mun að sjálfsögðu leika lög af henni meðfram eldra efni. Tilhlökkunin er áþreifanleg.