Svavar Knútur í Tehúsinu
7. June, 2024
Svavar Knútur söngvaskáld fagnar nú útgáfu á nýjustu plötu sinni, Ahoy! Side B, með tónleikum um landið vítt og breitt og auðvitað er mikilvægt að heimsækja vini og vellunnara á Egilsstöðum og syngja fyrir gesti á Tehúsinu, föstudagskvöldið 7. júní kl. 20.00.
Samhliða Ahoy! Side B kemur út Tvöfaldur vínill, Ahoy!, þar sem Side B rennur saman við systurplötu sína Ahoy! Side A, sem kom út 2018. Loksins sameinaðar!
Á tónleikunum mun Svavar Knútur syngja lög vítt og breitt af ferli sínum og segja sögur af ferðlögum, löndum og lýðum. Börn eru auðvitað velkomin í fylgd með foreldrum.
Aðgangseyrir er litlar kr. 3.500, en ókeypis er fyrir börn og unglinga undir 18 ára í fylgd með foreldrum eða afa/ömmu.
Sjáumst eldhress!
Miðasala hefst von bráðar á tix.is
Miðasala hefst von bráðar á tix.is