Supersport í Tónspili

14. May, 2025

“ekkert breytist, allt er alltaf að breytast” og breytingar eru lykilþema á verðlaunaplötunni “allt sem hefur gerst” úr smiðju Supersport! – enda eru stöðugar breytingar eini fastinn í óreiðu lífsins, þær liggja endalaust í leynum á landamærum hreyfingar og kyrrstöðu, stöðnunar og vaxtar, þroska.
eftir annasaman vetur heldur sveitin nú á vit nýrra ævintýra á meginlandinu: framundan er hlykkjóttur evróputúr sem teygir sig alla leið frá norður danmörku til ítalíu, og loks ungverjalands, með viðkomu í þýskalandi, póllandi, sviss, slóveníu, slóvakíu, og austurríki. en áður en lagt verður upp í þessa langferð er vísast að kasta kveðju á klakann.
það er nefnilega svo að þann 14. maí kemur Supersport! fram á tónleikum í Tónspili í Neskaupstað, síðasta stopp á íslandi fyrir brottför útí hinn stóra heim. öll hjartanlega velkomin.
Húsið opnar klukkan 20:00 Kr. 3.500.