Sunnudagsganga – Strútsfosshringur
5. September, 2021
Sunnudagsganga – Strútsfosshringur með Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs
5. september kl. 10:00
Brottför frá Tjarnarási 8, Egilsstöðum
Erfiðleikastig: Miðlungs erfitt
Strútsfoss í Strútsá steypist fram af brúnum Villingadals inn af Suðurdal. Fossinn sem er tvískiptur, er með þeim hærri á landinu. Neðri hlutinn er um 100 m hár og sá efri um 20 m. Neðan fossins fellur áin í djúpu gili, Strútsgili. Gönguleiðin liggur frá Sturluflöt, innsta bæ í Suðurdal upp með Fellsá yfir brú á Strútsá upp á Villingafell yfir Strútsá ofan brúna komið að perlustauk í niðurleið. Strútsfoss er ein af Perlum Fljótsdalshéraðs.
Umsjón: Stefán Kristmannsson.
Allar dagsferðir: Verð er 500 krónur og mæting við hús Ferðafélags Fljótsdalshéraðs, Tjarnarási 8 á Egilsstöðum nema annað sé tekið fram. Fólk er hvatt til að taka þátt í gönguleikjunum Perlur Fljótsdalshéraðs og Heiðarbýlin í göngufæri.