Sunnudagsganga: Höttur

15. August, 2021

Sunnudagsganga á Hött með Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs
15. ágúst kl. 10:00
Brottför frá Tjarnarási 8, Egilsstöðum
Erfiðleikastig: Erfitt

Ekið að perluskilti við Grófargerði.  Skemmtileg fjallganga á áberandi fjall á Héraði, um 1106 m. hátt. Höttur er ein af Perlum Fljótsdalshéraðs.

Umsjón: Katrín Reynisdóttir.

Allar dagsferðir: Verð er 500 krónur og mæting við hús Ferðafélags Fljótsdalshéraðs, Tjarnarási 8 á Egilsstöðum nema annað sé tekið fram. Fólk er hvatt til að taka þátt í gönguleikjunum Perlur Fljótsdalshéraðs og Heiðarbýlin í göngufæri.